Grettisgatan í öllum regnbogans litum

Grettisgatan í öllum regnbogans litum

Kaupa Í körfu

Fiðrildin fljúga, fuglarnir syngja og blóm vakna af löngum dvala. Sumarið nálgast. Mannlífið breytir líka um svip og umferðin með, enda greiðfært um auðar göturnar. Hvort þessi unga kona var með hugann við vorið eða kosningarnar á laugardaginn skal ósagt látið. Á meðan eru skuggahúsin sem sólin teiknar í Grettisgötunni boðberi þess kærkomna árstíma þegar langir dagar verða lengri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar