Krakkar í snú snú

Skapti Hallgrímsson

Krakkar í snú snú

Kaupa Í körfu

AKUREYRINGAR sleiktu sólina í allan gærdag í sunnan andvara, hitinn var orðinn 14 gráður laust fyrir hádegi og hlýtt var langt fram eftir kvöldi. Eigendur veitingastaða báru húsgögn út á stétt og fólk sötraði kaffið undir berum himni, börn voru léttklædd í frímínútum og rifjuðu upp vinsæla sumarleiki. Þessir krakkar drógu fram snú snú-bandið og léku sér í stíl við listaverkið á gafli Glerárskólans.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar