Skúli Pétursson og Sturla Hólm

Skúli Pétursson og Sturla Hólm

Kaupa Í körfu

Ekki einungis leggur Skúli Pétursson á sig að elta matinn ofan í fermingarveislugesti sonar síns um allar koppagrundir og fanga, hann matreiðir hann einnig, fyrst fyrir 100 manns á höfuðborgarsvæðinu og svo endurtekur hann leikinn fyrir 20 manns á Dalvík. TUTTUGU manns á Dalvík fá óvenjulega þjónustu á morgun. Þeim var boðið í fermingarveislu fyrir sunnan um síðustu helgi en höfðu ekki tök á að koma. Gestgjafarnir létu sér þó ekki segjast heldur koma einfaldlega með veisluna norður yfir heiðar til gestanna og endurtaka hana þar. MYNDATEXTI Veiðimenn Skúli og Sturla ásamt Flugu sem sótti allar þær gæsir, endur og skarfa sem eru á borð borin í fermingarveislunum tveimur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar