Fram - Stjarnan

Fram - Stjarnan

Kaupa Í körfu

STJARNAN bar í gær sigurorð af Fram, 27:19, í öðrum leik liðanna í úrslitum Íslandsmóts kvenna í handknattleik. Knattspyrnufélagið Fram fagnaði í gær 101 árs afmæli sínu og vonuðust stuðningsmenn liðsins því eftir að fá Fram-sigur í afmælisgjöf og að liðið jafnaði einvígið við Stjörnuna í 1:1. Það var hins vegar víðs fjarri, enda bauð leikur Framkvenna aldrei upp á slíkt. MYNDATEXTI Harpa Sif Eyjólfsdóttir úr Stjörnunni stöðvar Karen Knútsdóttur úr Fram í leiknum í gærkvöld.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar