Þór/KA

Þór/KA

Kaupa Í körfu

ÞÓR/KA varð deildabikarmeistari kvenna í fyrsta skipti á laugardaginn með því að sigra Stjörnuna, 3:2, í hörkuspennandi úrslitaleik í Kórnum í Kópavogi. Ljóst var að nýtt lið myndi hampa bikarnum því hvorugt hafði áður sigrað, enda hafa Valur, KR og Breiðablik að mestu einokað stærri titlana um árabil. Rakel Hönnudóttir skoraði sigurmark Akureyrarliðsins í uppbótartíma, skömmu eftir að Sandra Sigurðardóttir markvörður Stjörnunnar hafði fengið rauða spjaldið. MYNDATEXTI Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Þórs/KA, tók við bikarnum í leikslok eftir að Akureyrarliðið vann sinn fyrsta stóra titil í fótboltanum. Rakel tryggði sjálf sigurinn með því að skora úrslitamarkið í uppbótartíma

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar