Sandstormur í Kópavogi

Sandstormur í Kópavogi

Kaupa Í körfu

GRÍÐARLEGA hvasst var víða á höfuðborgarsvæðinu í gær líkt og víðar á landinu. Ekki ofsagt að Kári hafi verið í jötunmóð í Kórahverfinu í Kópavogi. Þar feykti hann sandi sem nota átti við framkvæmdir við fótboltavelli á íþróttasvæðinu við Kórinn. Sandrokið buldi á bílum og byrgði ökumönnum sýn á stuttum kafla. Þar sem fyrirstaða var dró sandinn í skafla. Unnið var að því að fjarlægja sandinn af götunni í gær, en þar var við ramman reip að draga því Kári ólmaðist við sandburðinn. Veðurstofan spáir að draga muni úr vindi á Suðvesturlandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar