Söngvaseiður - Útskrift

Söngvaseiður - Útskrift

Kaupa Í körfu

Nemanda í 10. bekk Lágafellsskóla var komið skemmtilega á óvart þegar hann var útskrifaður frá skólanum og verðlaunaður á sviði Borgarleikhússins SKEMMTILEG uppákoma var í Borgarleikhúsinu nú á fimmtudag þegar ein leikkvennanna í söngleiknum Söngvaseiði var útskrifuð frá Lágafellsskóla í Mosfellsbæ með pomp og prakt í lok sýningar. María Ólafsdóttir, sem fer með hlutverk Lovísu von Trapp, sá sér ekki fært að vera viðstödd útskriftina fyrr um daginn vegna þátttöku í sýningunni. MYNDATEXTI Útskrifuð María tekur við viðurkenningunum í gervi Lovísu von Trapp.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar