Ættleiðingarskjal álfabarns
Kaupa Í körfu
Hvert og eitt álfabarn er handsaumað og engin tvö þeirra eins. Þessi álfabörn ruku út þegar þau voru afhent til ættleiðingar á Sjómannadaginn hjá okkur, segir Jóhanna Jakobsdóttir leirlistakona sem hefur staðið fyrir allsérstöku verkefni á Hrafnistu í Hafnarfirði þar sem hún starfar sem verkstjóri á vinnustofu heimilismanna. Þegar ég fékk þá hugmynd að láta þá búa til álfabörn þá datt mér í hug að hafa þetta samvinnuverkefni og hefur það gengið mjög vel, en við vorum að prófa slíkt í fyrsta sinn hér. Ég kom gróflega með hugmynd að dúkkunum og svo útfærðum við þetta saman. Til dæmis þróuðum við það saman hvernig klæðin ættu að vera og niðurstaðan var að stelpurnar væru í svipuðum kjólum og allar með bleiu en að strákarnir ættu að vera í buxum. MYNDATEXTI Ættleiðingarskjal Garðar Hrafnar er álfabarn númer fimm og hér situr hann í fanginu á Gerðu nöfnu sinni, sem er ein af þeim sem bjuggu til álfabörnin.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir