Ísland - Makedónía

hag / Haraldur Guðjónsson

Ísland - Makedónía

Kaupa Í körfu

GUÐJÓN Valur Sigurðsson fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik hélt strax eftir leikinn við Makedóníumenn í gærkvöld til Þýskalands en Guðjón gengst undir aðgerð á úlnlið í dag og verður frá æfingum og keppni næstu mánuðina. Hann verður því ekki með Íslendingum á sunnudaginn þegar liðið mætir Eistum í lokaleiknum í undankeppni EM sem fram fer í Tallinn. MYNDATEXTI Pottþéttur Róbert Gunnarsson lék vel í vörn ogsókn. Hann skoraði 5 mörk og hér er eitt að fæðast eftir að vörn Makedóníu hafði verið leikin sundur og saman.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar