Turpentine

Einar Falur Ingólfsson

Turpentine

Kaupa Í körfu

VIÐ hliðina á Mokkakaffi neðst á Skólavörðustíg eru Sveinn Þórhallsson, galleristi í Gallery Turpentine aðeins ofar við götuna, og Njörður Snæhólm að opna nýja hönnunar- og listmunaverslun. Útskornir handverksgripir og hlutir eftir kunna íslenska hönnuði standa á rekaviðardrumbum sem Sveinn sótti norður á Strandir um helgina, og á veggjum hanga myndverk eftir kunna listamenn sem hafa verið á mála hjá Sveini í Gallery Turpentine, þar á meðal eftir þá Georg Guðna, Húbert Nóa og Sigurð Árna Sigurðsson. MYNDATEXTI Á nýja staðnum Njörður Snæhólm og Sveinn Þórhallsson við nýju verslunina á Skólavörðustíg 3.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar