Förðunartíska

Förðunartíska

Kaupa Í körfu

Ferskt, létt og bjart, segir Björg Alfreðsdóttir, förðunarmeistari hjá MAC, þegar hún er beðin um að lýsa hinni fullkomnu sumarförðun. Það eru sterkir tískustraumar í förðun fyrir sumarið 2009. Annars vegar er mikil rómantík í loftinu með bleikum og bláum tónum og svo eru það gylltu tónarnir sem koma á hverju sumri en í ár koma inn sterkari litir í þá línu eins og fjólulitur og gulur sem gera förðunina kraftmeiri fyrir þá sem vilja ganga aðeins lengra. MYNDATEXTI Bleikir tónar Fara öllum vel, en sérstaklega vel með bláu augunum og húð sem er ljós. Sæblágræni augnskugginn var vinsæll á tískusýningunum fyrir sumarið 2009 eins og mátti sjá hjá Gucci og gefur hann förðuninni ferskt og sumarlegt yfirbragð. Sæblágrænt Pigment Mutany. Augnskuggar Of summer og Silverthorn. Gloss Steal my heart. Varalitur A rose romance. Gel Kinnalitur Just a pinch. Kinnalitur Rose romance beauty powder.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar