Sudden Weather Change

Sudden Weather Change

Kaupa Í körfu

HLJÓMSVEITIN Sudden Weather Change deyr ekki ráðalaus. Hljóðfærum var stolið af sveitinni fyrir rúmri viku úr æfingahúsnæði þar sem þau voru geymd yfir nótt. Hljóðfærin sem hurfu eru skiljanlega mikilvægur þáttur í hljómi sveitarinnar og því var brugðið á það ráð að biðja aðdáendur um aðstoð við að safna fyrir nýjum hljóðfærum. Sveitin hélt af þeirri ástæðu fría tónleika ásamt sveitinni Reykjavík! í gömlu Kaffistofunni við Hverfisgötu. Liðsmenn Sudden Weather Change fengu lánuð þau hljóðfæri sem vantaði. Baukur var látinn ganga manna á milli og þar gátu þeir sem það vildu lagt sitt af mörkum til þess að aðstoða sveitina við að safna fyrir nýjum hljóðfærum. MYNDATEXTI Haukur baukur Gítarleikari Reykjavík! lét baukinn ganga á milli gesta.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar