Fylkir - Stjarnan

Fylkir - Stjarnan

Kaupa Í körfu

Ef að líkum lætur verður hart barist í Laugardalnum þar sem gömlu stórveldin Fram og KR leiða saman hesta sína. Gengi liðanna hefur verið ólíkt upp á síðkastið. Fram, spútnikliðið í fyrra, hefur aðeins unnið einn af sjö leikjum sínum og er stigi frá fallsæti með 5 stig en KR-ingar eru í þriðja sæti, fjórum stigum frá toppliði FH. Þessi leikur er ansi þýðingarmikill fyrir okkur. Ætlum við að vera í vandræðum og í botnbaráttu í sumar eða rífa okkur úr lægðinni? sagði Auðun Helgason, fyrirliði Fram, við Morgunblaðið. MYNDATEXTI Spenna Það er mikil spenna á Íslandsmótinu í fótbolta en 8. umferðin hefst á morgun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar