Trefjar - lúxustogari
Kaupa Í körfu
Trefjar í Hafnarfirði smíða "tog-snekkju" fyrir olíufursta í Sameinuðu arabísku furstadæmunum BÁTASMIÐJAN Trefjar í Hafnarfirði hefur nú lokið við smíði á ærið óvenjulegu fleyi. Um er að ræða lystisnekkju fyrir olíufursta í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en snekkjan en jafnframt togskip. Forsaga málsins er sú að á síðasta ári barst Trefjum fyrirspurn frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum um hvort fyrirtækið gæti smíðað snekkju sem jafnframt væri útbúin til togveiða. Högni Bergþórsson, tæknilegur framkvæmdastjóri hjá Trefjum, segir að í fyrstu hafi fyrirspurnin ekki verið tekin mjög alvarlega. "Okkur varð hins vegar fljótt ljóst að hér var alvara á ferðum. Furstinn gerði þá kröfu að skipið gæti stundað togveiðar en væri þannig útbúið að þegar hann væri ekki að veiðum, væri búnaðurinn ekki fyrir gestum á dekki og því hægt að nota skipið eins og hefðbundna skemmtisnekkju." MYNDATEXTI: Auðunn Óskarsson, framkvæmdastjóri Trefja, Guðmundur Kristjánsson ráðgjafi og Högni Bergþórsson, tæknilegur framkvæmdastjóri Trefja, við fleyið fagra.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir