SKOPMYND ársins: Íslenskir liðsmenn á hópmynd ásamt Japönum

Einar Falur Ingólfsson

SKOPMYND ársins: Íslenskir liðsmenn á hópmynd ásamt Japönum

Kaupa Í körfu

Árlega standa Blaðaljósmyndarafélag Íslands og Blaðamannafélag Íslands að sýningu á úrvali blaðaljósmynda hvers árs. Ljósmyndaverkunum er skipað niður í sjö efnisflokka; myndasyrpur, íþróttamyndir, fréttamyndir, skopmyndir, portrett, daglegt líf og "feature"- myndir og dómnefnd, skipuð fulltrúum félaganna tveggja, velur bestu myndirnar úr hverjum flokki auk þess að verðlauna sérstaklega bestu blaðaljósmynd ársins. Dómnefndin var að þessu sinni skipuð þeim Guðmundi Ingólfssyni og Ívari Brynjólfssyni, ljósmyndurum, og Kristínu Helgu Gunnarsdóttur fréttamanni. Hér á opnunni eru birtar þær myndir sem skara þóttu fram úr í sínum flokki. Sýning á verðlaunamyndunum ásamt öðrum myndum sem til álita komu stendur yfir í Gerðarsafni í Kópavogi til 1. febrúar. MYNDATEXTI: SKOPMYND ársins: Íslenskir liðsmenn á hópmynd ásamt Japönum, mynd Einars Fals Ingólfssonar ljósmyndara og myndstjóra á Morgunblaðinu mynd til á myndborði - Lesbók bls. 16

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar