MYNDASYRPA ársins: Nýtt líf eftir Kjartan Þorbjörnsson (Golla)

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

MYNDASYRPA ársins: Nýtt líf eftir Kjartan Þorbjörnsson (Golla)

Kaupa Í körfu

Árlega standa Blaðaljósmyndarafélag Íslands og Blaðamannafélag Íslands að sýningu á úrvali blaðaljósmynda hvers árs. Ljósmyndaverkunum er skipað niður í sjö efnisflokka; myndasyrpur, íþróttamyndir, fréttamyndir, skopmyndir, portrett, daglegt líf og "feature"- myndir og dómnefnd, skipuð fulltrúum félaganna tveggja, velur bestu myndirnar úr hverjum flokki auk þess að verðlauna sérstaklega bestu blaðaljósmynd ársins. Dómnefndin var að þessu sinni skipuð þeim Guðmundi Ingólfssyni og Ívari Brynjólfssyni, ljósmyndurum, og Kristínu Helgu Gunnarsdóttur fréttamanni. Hér á opnunni eru birtar þær myndir sem skara þóttu fram úr í sínum flokki. Sýning á verðlaunamyndunum ásamt öðrum myndum sem til álita komu stendur yfir í Gerðarsafni í Kópavogi til 1. febrúar. MYNDATEXTI: MYNDASYRPA ársins: Nýtt líf eftir Kjartan Þorbjörnsson (Golla) ljósmyndara Morgunblaðsins. filma hjá ljósmyndara: Lesbók bls. 16

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar