KR - Grindavík

Heiðar Kristjánsson

KR - Grindavík

Kaupa Í körfu

ÞAÐ mætti halda að Logi Ólafsson þjálfari KR hafi kafað djúpt í knattspyrnufræði norska landsliðsþjálfarans Egils Drillo Olsen fyrir leik KR og Grindavíkur í gær. Norska landsliðið náði undraverðum árangri í því að nýta horn- og aukaspyrnur undir stjórn Drillo og í gær skoraði Baldur Sigurðsson tvívegis eftir hornspyrnu frá vinstri með fjögurra mínútna millibili um miðjan fyrri hálfleik. Ég er frekar lélegur í tölfræði miðað við Egil Drillo Olsen. MYNDATEXTI Tilþrif Guðmundur Benediktsson klippir hér boltann gegn Grindavík og skotið fór rétt yfir markið. Markaskorari leiksins Baldur Sigurðsson fylgist vel með lengst til vinstri en Baldur skoraði bæði mörk KR í leiknum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar