Charlotte England

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Charlotte England

Kaupa Í körfu

ELSTI keppandinn á Arctic Open golfmótinu á Akureyri að þessu sinni var 88 ára kanadísk kona, Charlotte England. Þessi bráðhressi kylfingur hefur stundað íþróttina í 72 ár. Ég las um þetta miðnæturmót í golftímariti fyrir fimm árum og var strax staðráðin í að hingað yrði ég að koma. Og ég vona sannarlega að fleiri Kanadamenn leggi leið sína hingað eftir að ég kem heim og segi frá þessum yndislega stað, sagði England í samtali við Morgunblaðið. MYNDATEXTI Reynsla Charlotte England hefur leikið golf í rúmlega 70 ár.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar