KR - Breiðablik

KR - Breiðablik

Kaupa Í körfu

Byrjun leiksins minnti óneitanlega á leik liðanna á KR-vellinum fyrir ári. Þá skoraði Nenad Zivanovic tvívegis snemma í leiknum fyrir Breiðablik sem fór með sigur af hólmi 2:1. Aftur skoruðu Blikar tvívegis á fyrstu mínútum leiksins og í bæði skiptin tókst þeim að prjóna sig í gegnum miðja vörn KR-inga. KR-ingar sóttu linnulítið það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en þrátt fyrir að skapa sér talsvert af skotfærum þá virtist engu að síður vanta smá brodd í sóknarleikinn. MYNDATEXTI Ekkert gefið eftir Nýliðinn Elfar Freyr Helgason kom inn á sem varamaður í fyrri hálfleik hjá Breiðbliki. Hér er hann í baráttu við Bjarna Guðjónsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar