Vinnuskólastúlkur

Líney Sigurðardóttir

Vinnuskólastúlkur

Kaupa Í körfu

Mikið verður um dýrðir í Langanesbyggð um næstu helgi því þá hefst hin árlega hátíð Kátir dagar. Mikil undirbúningsvinna er brátt að baki og fjölbreytt dagskrá er framundan svo allir ættu að finna eitthvað við hæfi. Dæmi um viðburði eru listsýningar, lasertag, gönguferðir, dorgveiðikeppni, knattspyrnumót og kassabílarall. Einnig eru dansleikir og trúbadorar og hinir stórskemmtilegu Ljótu hálfvitar verða með tónleika í Þórsveri. MYNDATEXTI Vinnuglaðar stúlkur María Valgerður og Karítas taka þátt í fegrun umhverfisins á Þórshöfn en um næstu helgi verður hátíðin Kátir dagar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar