Þór - KA

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Þór - KA

Kaupa Í körfu

ÞÓRSARAR vígðu nýja knattspyrnuvöllinn sinn í gær þegar þeir buðu höfuðandstæðingum sínum í KA yfir Glerána til að etja við þá kappi. Ekki var gestrisninni fyrir að fara því heimamenn hirtu öll stigin með því að skora sigurmark leiksins í blálokin. Þór hefur nú unnið fjóra leiki í röð og þær raddir sem heimtuðu höfuð þjálfarans fyrir stuttu virðast þagnaðar. Mikil hátíð var í Þorpinu fyrir leik og gátu Þórsarar haldið veislunni áfram eftir hann. Eftir leik var stemningin í búningsklefa Þórs engu lík en lítið heyrðist úr klefa KA-manna. MYNDATEXTI Sigurvíma Ármann Pétur Ævarsson fagnar sigurmarkinu í blálokin. Þorsteinn Ingason, Sigurður Kristjánsson og Einar Sigþórsson eru ekki síður glaðir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar