Rey Cup 2009

Jakob Fannar Sigurðsson

Rey Cup 2009

Kaupa Í körfu

ÞRÓTTARAR halda sitt árlega Rey Cup-fótboltamót fyrir 13-16 ára unglinga í Laugardalnum þessa dagana en mótinu lýkur á morgun. Reyndar er mótið orðið svo stórt að umfangi að vellirnir í Laugardal duga ekki lengur og því er spilað víðar um borgina. Fleiri lið eru með en nokkru sinni fyrr, eða samtals 106, en hafa áður verið flest 82, árið 2006. Hinsvegar eru erlendu liðin færri nú en undanfarin ár. Yfirleitt hafa 6-7 erlend lið mætt á mótið en nú eru þau þrjú, tvö frá Danmörku og eitt frá Færeyjum, öll í strákaflokkunum. MYNDATEXTI Drengir Þátttökuliðin í drengjaflokkunum eru 64 talsins, þar af 40 í 4. flokki og 24 í 3. flokki. Þessi mynd er úr leik Vals og HK þar sem ekkert var gefið eftir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar