Sveitakeppni GSÍ

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Sveitakeppni GSÍ

Kaupa Í körfu

Keilir hefur titil að verja í karlaflokki og eru Hafnfirðingar í A-riðli með Golfklúbbi Reykjavíkur (GR), Leyni frá Akranesi (GL) og Golfklúbbi Vestmannaeyja. GK vann báða sína leiki í gær, gegn GL og GV. GR gerði slíkt hið sama gegn GL og GV. GR og GK mætast í dag í úrslitaleik um efsta sæti riðilsins en tvö efstu liðin leika til undanúrslita gegn annaðhvort Kili úr Mosfellsbæ (GKj.) eða Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG) sem eru í efstu sætunum í B-riðli. MYNDATEXTI Mættur Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson keppir fyrir GKG í sveitakeppninni sem fram fer á Jaðarsvelli á Akureyri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar