Kanínur í Elliðaárdal

Kanínur í Elliðaárdal

Kaupa Í körfu

ÞESSI baugótta kanína var ásamt nokkrum vinkonum sínum að hnusa með krúttlegu snjáldrinu í Elliðaárdalnum. Eflaust voru þær í ætisleit en sú leit tekur aldrei enda hjá þessum villtu kanínum sem eru orðnar hluti af borgarsamfélaginu. Ekki væsti um þær í síðsumarblíðunni en þeirra bíður veturinn og þær þurfa að undirbúa sig vel til að takast á við óblíðar og kaldar krumlur Kára.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar