Árni Gautur Arason

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Árni Gautur Arason

Kaupa Í körfu

ÞIÐ fáið 15 mínútur til þess að tala við leikmenn og ég byrja að telja eftir 2 mínútur,“ sagði Ólafur Jóhannesson við fjölmiðlamenn á æfingu íslenska karlalandsliðsins í Safamýrinni í gær. Þjálfarinn setti síðan skeiðklukkuna í gang og stóð við orð sín. Fimmtán mínútum síðar var æfingin byrjuð og landsliðsmennirnir hófu upphitun með formlegum hætti. Það er allt undir „kontról“ hjá Ólafi sem hefur stýrt landsliðinu frá því í nóvember árið 2007. Þjálfarinn sagði í gær að liðið væri á réttri braut en vonbrigði undankeppni heimsmeistaramótsins væru leikirnir gegn Skotum. MYNDATEXTI Markvörðurinn Árni Gautur Arason hefur ekki fengið tækifæri í byrjunarliði Íslands í undankeppni heimsmeistaramótsins

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar