Make Up Store

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Make Up Store

Kaupa Í körfu

"ÞAÐ er mikið um gegnsætt gloss og varaliti," sagði Margrét R. Jónasardóttir í Make Up Store þegar haustlínurnar Czarinna og Babydoll voru kynntar þar nú í vikunni. MYNDATEXTI: Babydoll Línan kemur út í nóvember og er innblásin af "burlesque"-dönsurum eins og Ditu Von Teese. Línan er bleikari en aðrar línur sem ná yfir jólin en einnig er notað mikið af svörtum maskara og augnblýanti. Á módelið var notaður mattur augnskuggi í fjólubláum tón og mikið af varablýanti en gloss var sett í litlu magni aðeins á neðri vörina til að gefa vörunum fyllingu. Þá voru festir svokallaðir "bubblegum"-steinar í kringum annað augað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar