Framkvæmdir við höfnina

Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir

Framkvæmdir við höfnina

Kaupa Í körfu

....... Framkvæmdir við Landeyjahöfn ganga vel og reyndar vonum framar. Vestari varnargarðurinn er nú kominn í fulla lengd og nú er verið að hækka garðinn og von bráðar verður hann kominn í endanlega mynd. Sandfok getur orðið óvinur ferðalanga og til að hefta hann hefur verið sáð í sandinn melgresi. Sáningin hefur gengið mjög vel í sumar og er nú hvanngrænt yfir að líta þar sem áður var svartur sandur. Vonandi fer veturinn mildum höndum um sáninguna svo að á henni megi byggja frekari uppgræðslu. MYNDATEXTI Framkvæmdir Vestari varnargarðurinn á Landeyjahöfn er kominn í fulla lengd og nú er unnið við að hækka garðinn. Stutt er í að verkið klárist.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar