Æfing íslenska landsliðsins - kvennalandsliðið

Heiðar Kristjánsson

Æfing íslenska landsliðsins - kvennalandsliðið

Kaupa Í körfu

Kvennalandsliðið í knattspyrnu tekur upp þráðinn í undankeppni heimsmeistaramótsins í kvöld þegar það tekur á móti Eistum á Laugardalsvellinum klukkan 20. Þetta er annar leikur Íslands í undankeppninni en ,,stelpurnar okkar“ burstuðu Serba, 5:0, í kveðjuleiknum fyrir Evrópumótið í Finnlandi fyrir mánuði þar sem Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fjögur mörk. Eistarnir hefja hins vegar þátttöku í undankeppninni með leiknum í kvöld. MYNDATEXTI Kristín Ýr Bjarnadóttir og Þóra B. Helgadóttir með augun á boltanum á æfingu landsliðsins í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar