Forman svarar spurningum

Forman svarar spurningum

Kaupa Í körfu

Það gat ekki annað verið en að maðurinn sem leikstýrði einu mesta meistaraverki kvikmyndasögunnar, Gaukshreiðrinu, væri heillandi. Milos Forman, Tékkinn víðfrægi, svaraði misgáfulegum spurningum áhorfenda á sérstakri viðhafnarsýningu á myndinni í Háskólabíói í fyrrakvöld og þar kom margt forvitnilegt fram. Gaukshreiðrið er mögnuð kvikmynd, snertir á svo mörgum hliðum mannlegrar tilveru og samskipta, misbeitingu valds og hvernig við mennirnir drögum hver annan í dilka og ákveðum að einn sé heill á geði en annar ekki, án þess að geta í raun skilgreint hvað er eðlileg hegðun MYNDATEXTI Meistari Forman svarar spurningum með Börk Gunnarsson sér við hlið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar