Breiðablik

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Breiðablik

Kaupa Í körfu

Þetta er bara frábært. Það er búið að bíða eftir þessu í Kópavogi í svo mörg ár. Þetta eru allt strákar sem hafa staðið sig vel í yngri flokkunum og kynnst því að sigra þar en ekki náð því í meistaraflokki fyrr en nú. Það að hafa nú náð í fyrsta titilinn leysir vonandi einhver öfl úr læðingi,“ sagði Arnar Grétarsson sem á laugardag fagnaði fyrsta bikar Breiðabliks í meistaraflokki karla. Þetta var jafnframt í fyrsta skipti sem Arnar gat handleikið bikar þrátt fyrir að hann hafi orðið bikarmeistari áður MYNDATEXTI Breiðablik vann sinn fyrsta stóra titil í karlafótboltanum. Leikmenn liðsins voru að vonum ofsakátir á verðlaunapallinum og hér eru þeir Arnar Grétarsson og Kári Ársælsson fyrirliði í þann veginn að hefja bikarinn á loft eftir að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra afhenti þeim hann.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar