Haukur Heiðar og uppáhaldsflíkin hans

Haukur Heiðar og uppáhaldsflíkin hans

Kaupa Í körfu

Uppáhaldsvetrarflíkin mín er þessi forláta ítalski jakki sem var keyptur í Gamla Stan í Stokkhólmi á sínum tíma. Það er skemmtilegt frá því að segja að þegar ég keypti jakkann hélt ég að hann væri grænn á litinn. Þegar ég kom svo með hann heim áttaði ég mig á því að hann er í raun og veru brúnn, en skrýtna lýsingin í búðinni gerði það að verkum að hann leit út fyrir að vera grænn, af öfund. Nei, þetta var nú grín en svona í alvöru þá hélt ég að hann væri grænn en ekki brúnn,“ segir Haukur Heiðar Hauksson, söngvari Dikta. MYNDATEXTI Hlýlegur Haukur Heiðar í jakkanum góða sem reyndist vera brúnn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar