Sauðamessa - Borgarnesi

Sauðamessa - Borgarnesi

Kaupa Í körfu

LÍF og fjör var á Sauðamessu í Borgarnesi á laugardag þegar Borgfirðingar lögðu fram fjárskuldbindingar í formi lausafjár, sem rekið var eftir götum bæjarins. Þessi ungi herramaður tók sér far með fénu og notaði báðar hendur til að halda sér í horn þessa óvenjulega farskjóta. Þá kom sér vel að vera með sérútbúið regnhlífarhöfuðfat, enda rigndi duglega á bæði menn og rollur, sem létu þó bleytuna lítið á sig fá. Meðal annars hindraði hún ekki Baldur Jónsson í að verja margfaldan meistaratitil sinn í lærakappáti sem er árlegur viðburður á Sauðamessunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar