Valur - Keflavík

Valur - Keflavík

Kaupa Í körfu

VALSKONUR fögnuðu sínum fyrsta sigri í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöld þegar þeir höfðu betur gegn Keflavík í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda, 79:75. Valur var yfir 41:25 í hálfleik og lagði grunninn að sigrinum með góðum leikkafla í öðrum leikhluta sem endaði 23:13 fyrir Val. Keflavík klóraði í bakkann í seinni hálfleik en tókst ekki að innbyrða sín fyrstu stig en hið sigursæla lið Keflavíkur hefur tapað öllum þremur leikjum sínum í deildinni. Hrund Jóhannsdóttir skoraði 23 stig fyrir Val og Sakera Young kom næst með 14 stig. Viola Beybeyah var langatkvæðamest í liði Keflvíkinga en hún skoraði 28 stig. Næst kom Marín Rós Karlsdóttir með 12 stig. MYNDATEXTI Ari Gunnarsson, þjálfari Vals

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar