Sauðburður

Sauðburður

Kaupa Í körfu

Af lífi og sál er yfirskrift ljósmyndasamkeppni fréttaritara Morgunblaðsins. Vísar heitið til áhuga ljósmyndaranna og viðfangsefnis þeirra sem er líf og starf fólksins á landsbyggðinni. Ljósmyndasamkeppnin tók til mynda sem teknar voru á síðasta ári. MYNDATEXTI Börnin í sveitinni lifa sig inn í sauðburðinn. Gaman er að fylgjast með lömbunum koma í heiminn og stíga fyrstu skrefin. Anna María Magnúsdóttir í Haukholtum í Hrunamannahreppi fékk að halda á fallegu lambi. Sigurður Sigmundsson fréttaritari fylgdist með henni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar