Auður Skúladóttir

Skapti Hallgrímsson

Auður Skúladóttir

Kaupa Í körfu

Íbúa neðan Hjalteyrargötu á Oddeyri í höfuðstað Norðurlands má telja á fingrum beggja handa. Þetta hefur lengi verið atvinnusvæði; kjötvinnsla, útgerð og fiskvinnsla, bílaverkstæði. Þarna leggja skip að bryggju. Ofan Hjalteyrargötu er gott að búa, það vita þeir Eyrarpúkar sem reynt hafa, en Auður og Hjörtur segja neðri hluta eyrarinnar óslípaðan gullmola. „Þetta svæði hefur ekki fengið verðskuldaða athygli en það á eftir að breytast,“ segir Auður. Dæmi: „Héðan er stutt inn í bæ og ég fer allt fótgangandi nema þegar ég þarf í kjörbúð tvisvar í viku. Hér er líka mjög snjólétt.“ MYNDATEXTI Vinsælasta hornið í íbúðinni, við arininn. Styttan til vinstri er af Marie Antoinette, sem Auður hrífst mjög af.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar