Stjarnan - Haukar

Stjarnan - Haukar

Kaupa Í körfu

Stjarnan var á toppi N1-deildar kvenna í sólarhirng um helgina. Garðbæingar burstuðu Hauka á laugardaginn en Valskonur skelltu síðan Fylki í gær og komust með því aftur í efsta sæti deildarinnar. Toppliðin mætast síðan á Hlíðarenda á miðvikudaginn í sannkölluðum stórleik deldarinnar. Valur hafði eins marks sigur þegar liðin mættust í Garðabænum í haust, en þá var varnarleikurinn í hávegum hafður og lokatölur urðu 17:18 MYNDATEXTI Þorgerður á fleygiferð gegn Haukum og tilbúin að lauma boltanum á Elísabetu Gunnarsdóttur á línunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar