Haukar - Grótta

Haukar - Grótta

Kaupa Í körfu

Grótta sótti Hauka heim í Hafnarfjörðinn í gær á Íslandsmótinu í handbolta karla og fram eftir leik var ekki hægt að sjá hvoru liðinu var spáð sigri í deildinni og hvoru falli. Eftir að Haukar tóku sex marka syrpu sem skilaði sjö marka forskoti voru úrslitin ljós. Haukar hafa því enn ekki tapað leik. Þeir eru samt í öðru sæti deildarinnar, stigi á eftir Val, en eiga leik til góða. MYNDATEXTI Sigurbergur Sveinsson landsliðsmaður og stórskytta Íslandsmeistaraliðs Hauka þrumar hér að marki Gróttu í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar