Jólaföt á börnin

Jólaföt á börnin

Kaupa Í körfu

Nú styttist í blessuð jólin og þá ber að huga að jólafötunum. Það vill enginn fara í jólaköttinn enda aldrei að vita hvað það óargadýr gerir. Sérstaklega er passað upp á að blessuð börnin hafi eitthvað nýtt og fallegt til að klæðast á jólunum svo kattarskömmin haldi sig fjarri. Fyrir nokkrum árum var það svo að kaupa varð jólafötin sem fyrst svo þau yrðu ekki uppseld og til að mynda var mikill skortur á hvítum og sparilegum sokkabuxum á ungar dömur eitt árið. Nú er af sem áður var og það er gríðarlega mikið úrval af barnafötum í verslunum. Þó er ráðlegt að fara í verslunarleiðangur snemma því enn gerist það að ákveðnar vörur seljast fljótt upp. Hér má sjá hluta af því miklu úrvali sem er af fallegum fötum fyrir börnin fyrir jólin. svanhvit@mbl.is Fyrirsæturnar eru Guðrún Thelma Matthíasdóttir, 9 ára og Guðmundur Adam Gígja, 5 ára. MYNDATEXTI Pæjan og gæinn Stúlkan: Svört stutt peysa með silfri í frá Outfitters Nation, 4.990 krónur. Fjólublár kjóll með slaufu frá Outfitters Nation, 6.500 krónur. Svartar glansandi leggings frá Outfitters Nation, 3.990 krónur. Skór eru í einkaeigu. Drengurinn: Svört skyrta frá Name it, 4.990 krónur. Grænt vesti frá Name it, 4.990 krónur. Svartar buxur frá Name it, 3.990 krónur. Svartir skór frá Next, 13.290 krónur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar