Jólaföt á börnin

Jólaföt á börnin

Kaupa Í körfu

Nú styttist í blessuð jólin og þá ber að huga að jólafötunum. Það vill enginn fara í jólaköttinn enda aldrei að vita hvað það óargadýr gerir. Sérstaklega er passað upp á að blessuð börnin hafi eitthvað nýtt og fallegt til að klæðast á jólunum svo kattarskömmin haldi sig fjarri. Fyrir nokkrum árum var það svo að kaupa varð jólafötin sem fyrst svo þau yrðu ekki uppseld og til að mynda var mikill skortur á hvítum og sparilegum sokkabuxum á ungar dömur eitt árið. Nú er af sem áður var og það er gríðarlega mikið úrval af barnafötum í verslunum. Þó er ráðlegt að fara í verslunarleiðangur snemma því enn gerist það að ákveðnar vörur seljast fljótt upp. Hér má sjá hluta af því miklu úrvali sem er af fallegum fötum fyrir börnin fyrir jólin. svanhvit@mbl.is Fyrirsæturnar eru Guðrún Thelma Matthíasdóttir, 9 ára og Guðmundur Adam Gígja, 5 ára. MYNDATEXTI Jólaleg og sæt Fötin eru öll frá Englabörnum. Stúlkan: Rauð, stutt peysa, 6.990 krónur. Hvít skyrta, 13.990 krónur. Svart pils með rauðum hjörtum,10.990 krónur. Rauðar leggings, 4.990 krónur. Rauðir ballerínu skór, 7.990 krónur. Drengurinn: Jakkaföt; buxur, jakki og vesti en jakkinn sést þó ekki á mynd, 19.990 krónur. Hvít skyrta með bleikum og bláum röndum, kr. 5.990. Vínrauð slaufa, 1.990 krónur. Brúnir og gráir skór, 14.990 krónur. Jólagjöf Englabarna til viðskiptavina sinna er 20% afsláttur af öllum vörum og hann má því draga frá verðinu sem hér kemur fram.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar