Heiðar Kristjánsson leikskólakennari

Heiðar Kristjánsson

Heiðar Kristjánsson leikskólakennari

Kaupa Í körfu

6:30 Heiðar fer fyrstur fjölskyldumeðlimanna á fætur, hellir upp á kaffi og hleypir hundinum Pjakki út. Síðan sest hann niður með kaffibolla og les blöðin. Að blaðalestrinum loknum vekur Heiðar börnin, Myrkva, 3 ára, og Eneku, 9 ára. Þá er kveikt á morgunsjónvarpinu og krakkarnir fá sér morgunkorn yfir teiknimyndunum. „Svo mætum við Myrkvi saman í vinnuna klukkan hálfníu. Ég sæki morgunmatinn og fer með hann út í skúr þar sem elsta deildin er. Ég sest svo niður með krökkunum og fæ mér að borða,“ segir Heiðar um upphaf vinnudagsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar