Valur - Fram 35:24

Valur - Fram 35:24

Kaupa Í körfu

*Síst of lítill sigur Valsmanna *Margir ungir leikmenn Fram létu ljós sitt skína Það tók Valsmenn aðeins um tuttugu mínútur að gera út um viðureign sína við Fram og tryggja sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni karla í handknattleik, Eimskipsbikarnum, á heimavelli í gærkvöldi. Framarar héldu aðeins í við gestgjafa sína á fyrsta þriðjungi leiksins og varla það. Lokatölur, 35:24, fyrir Val sem var sex mörkum yfir í hálfleik, 18:12. MYNDATEXTI: Öflugur Arnór Þór Gunnarsson skoraði 10 mörk og er hér sloppinn framhjá Framaranum Andra Berg Haraldssyni. Bikarmeistarar Vals voru ekki í vandræðum með að komast í undanúrslitin og unnu ellefu marka sigur á Fram.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar