Eldsvoði

Guðrún Vala Elísdóttir

Eldsvoði

Kaupa Í körfu

Borgarnes | Pólsk hjón, þau Beata Sokolowska og Jacek Lesek, ásamt tveggja ára dóttur sinni Júlíu urðu fyrir því óhappi að heimili þeirra við Egilsgötu brann á fimmtudagskvöld. Innbúið var ótryggt. Beata hafði sett upp kartöflurnar og ætlaði að hafa matinn tilbúinn þegar Jacek kæmi heim úr vinnunni klukkan átta. ,,En þvottavélin okkar er biluð og ég hef fengið að þvo hjá systur minni sem býr hérna í sömu götu. Við Júlía skutumst þangað og ég gleymdi kartöflunum á suðu á meðan. Þó að ég hafi ekki verið nema um 20 mínútur lagði reyk út um gluggana, það var dimmt en mér sýndist ég sjá loga í gegnum gluggann.“ MYNDATEXTI Skemmdir Innanstokks er íbúðin mikið skemmd og sótið liggur yfir öllu. Viðgerðirnar taka nokkra mánuði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar