Ísland - Noregur

Ísland - Noregur

Kaupa Í körfu

SÖLVI Geir Ottesen, landsliðsmaður í knattspyrnu, er besti leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar á þessu keppnistímabili, samkvæmt einkunnagjöf Ekstrabladet. „Þetta er fínasta viðurkenning. Ég vissi svo sem alveg að ég væri búinn að spila vel í haust en ætli það megi samt ekki segja að þetta hafi komið mér á óvart. Ég fékk þó ekkert sjokk,“ sagði Sölvi við Morgunblaðið. Mörg sterk lið hafa augastað á þessum öfluga varnarmanni og Sölvi er spenntur fyrir að komast í ensku úrvalsdeildina. | Íþróttir MYNDATEXTI Sölvi Geir Ottesen hefur leikið vel í Danmörku.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar