Tónlistarhúsið fær nafnið Harpa

Tónlistarhúsið fær nafnið Harpa

Kaupa Í körfu

NEMENDUR okkar eru stundum sagðir vera í Hörpunni og ég sjálfur er ósjaldan kenndur við skólann. Við gætum því þurft eitthvað að umorða hlutina, ef einhver vandamál skapast,“ segir Kjartan Eggertsson, skólastjóri Tónskóla Hörpunnar. Nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsinu við Reykjavíkurhöfn var gefið nafn við formlega athöfn sl. föstudag og skal húsið einnig heita Harpa. Spurningar vekur hins vegar hvort þetta geti valdið misskilning og ruglingi – þar sem tónlistarhúsið og tónskólinn verða lagðir að líku. MYNDATEXTI Harpa Frá athöfninni sl. föstudag þar sem tónlistarhúsinu var gefið nafn, sem valið var úr fjölda tillagna..

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar