Jólasveinar

Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Jólasveinar

Kaupa Í körfu

JÓLABÖLL með skemmtilegum og orðheppnum jólasveinum og jafnvel móður þeirra, henni Grýlu, stytta börnum um land allt biðina til jóla. Sveinki gefur börnunum bragðgóðan glaðning eða lítinn pakka og dansar svo með þeim í kringum jólatréð ef hann má vera að. Börnin fara í sparifötin og sýna sínar bestu hliðar enda ekki eftirsóknarvert að lenda í jólakettinum. MYNDATEXTI Heimsókn á spítalann Jólasveinar gáfu sér góðan tíma til að spjalla við börnin sem dvelja á Barnaspítala Hringsins. Fengu þau gjafir og sungu með sveinunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar