Eftirlegukindur
Kaupa Í körfu
FÓLK í gönguferð tók nýlega eftir því að tvær eftirlegukindur voru enn á Heiðarheiði upp af Vík í Mýrdal og fóru sex menn að leita þeirra í birtingu í gærmorgun, þ.ám. Jónas Erlendsson, fréttaritari Morgunblaðsins. „Þetta voru kindur úr Reynishverfi, höfðu orðið eftir í smalamennskunni í haust,“ segir Jónas. „Við fórum á bíl inn úr Heiðargili á heiðinni, þetta voru ær og lamb sem komu niður. Ærin hélt sig hins vegar utan í snævi þöktum hömrum í hlíðinni og það varð að snara hana yfir hornin, þetta var bara eins og í villta vestrinu! Málið snerist um að ná henni áður en hún hrapaði. En það tókst vel, við vorum komnir aftur um tvöleytið. Kindurnar voru báðar vel á sig komnar enda tíðin búin að vera mjög góð.“ Færið var gott að sögn Jónasar, lítill snjór og bjart veður.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir