Frumkvöðlar
Kaupa Í körfu
Að koma að luktum dyrum þegar fyrstu skrefin eru tekin á vinnumarkaði er niðurdrepandi. Í Frumkvöðlasmiðjunni er unnið að því að efla sjálfstraust ungs fólks og opna augu þess fyrir eigin hæfileikum og möguleikunum sem til staðar eru þrátt fyrir kreppu og ótryggt atvinnuástand. Einn hópurinn ætlar að opna þjónustumiðstöð og verslun með fæðubótarefni fyrir fólk í líkamsrækt. Annar hyggst opna verslun með notuð barnaföt og baðvörur. Sá þriðji hyggst opna kaffihúsið Eðalkaffi. Sá fjórði ætlar að bjóða upp á námskeið um það hvernig á að búa til raftónlist. Um þessar mundir taka rúmlega þrjátíu ungmenni þátt í Frumkvöðlasmiðju á Akranesi. Meðalaldurinn er rúmlega 22 ár og hópurinn á það sammerkt að vera í atvinnuleit. Markmiðið með smiðjunni er að veita unga fólkinu sjálfstraust, opna augu þess fyrir möguleikunum og hjálpa því að taka málin í eigin hendur. Inga Dóra Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi, Guðrún Sigríður Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar Vesturlands, og Hekla Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Símenntunarmiðstöðinni, vinna saman að þessu verkefni.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir