Maldíveyjar

Einar Falur Ingólfsson

Maldíveyjar

Kaupa Í körfu

Við verðum að kaupa okkur land annars staðar,“ segir forseti Maldíveyja en þar búa tæplega 400.000 manns. Eyjarnar eru að margra mati einskonar paradís á jörð, draumaviðkomustaður ferðalanga, en þeim er ógnað hækki yfirborð sjávar að ráði. Meðalhæð eyjanna yfir sjávarmáli er rúmur metri MYNDATEXTI Hin þéttbýla Malé er höfuðborg Maldíveyja. Á 1,6 ferkílómetrum lands búa um 70.000 manns. Eyjan hefur á síðustu áratugum veruð stækkuð umtalsvert með landfyllingum. Flugvöllurinn er á næstu eyju, eina flugbrautin sem vitað er um sem hefst og endar í sjó.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar