Dansvika - Guðrún Gísladóttir og Tístran Blær

Atli Vigfússon

Dansvika - Guðrún Gísladóttir og Tístran Blær

Kaupa Í körfu

Aðaldalur | Dans setti svip sinn á mannlífið í Aðaldal á dögunum, því Dansskóli Jóns Péturs og Köru var með kennslu í dansi bæði í leikskólanum og grunnskólanum. Á kvöldin var svo fullorðna fólkið í danskennslu sem var mjög vel sótt, en yfir fjörutíu manns úr skólahverfinu, foreldrar og aðrir, mættu á æfingarnar....Nemendur leikskólans voru, eins og oft áður, með skemmtileg tilþrif og var mikið fyrir þeim klappað. Þeirra á meðal voru þau Guðrún Gísladóttir og Tístran Blær Karlsson sem hér sjást á myndinni að tjá tónlistina með höndunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar