Flúðir

Sigurður Sigmundsson

Flúðir

Kaupa Í körfu

Flúðir | Kaupþing banki hefur ákveðið að loka útibúi sínu á Flúðum þann 11. júlí næstkomandi. Reiði er meðal íbúa Hrunamannahrepps með þessa ákvörðun og hefur komið fram að íbúar íhuga að hætta viðskiptum við bankann. Um 400 manns af 800 íbúum sveitarinnar skrifuðu undir mótmælaskjal af þessu tilefni. Var það afhent Kristófer Tómassyni, aðstoðarútibússtjóra KB banka á Selfossi, síðastliðinn miðvikudag. MYNDATEXTI Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri afhendir Kristófer Tómassyni mótmælin. Að baki þeirra eru hreppsnefndarmennirnir Ragnar Magnússon, Sigurður Ingi Jóhannsson oddviti og Esther Guðjónsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar